Hjólaleiðir um allt Ísland

Finndu hjólaleiðir um allt land, skoðaðu upplýsingar og veldu leið beint á kortinu.

– opinberar leiðir
– kílómetrar samtals

Hleð opinberum hjólaleiðum…

⭐ Vinsælar leiðir

Hleð leiðum…

Allt sem þú þarft fyrir hjólaferðina

Hjólaappið er hannað fyrir hjólreiðar um Ísland, hvort sem þú hjólar á malbiki eða malarvegum.

🔎

Finndu leiðir

Finndu hjólaleiðir um allt land og skoðaðu vegalengd, undirlag og upplýsingar um leiðina.

🗺️

Kort og gervihnattamynd

Skoðaðu leiðir á hefðbundnu korti eða gervihnattamynd.

📍

Taktu upp ferð

Taktu upp hjólaferð með GPS og vistaðu leiðina og upplýsingar um ferðina.

🧭

Leiðsögn

Fylgdu GPS-leiðinni á kortinu og sjáðu hvar þú ert á leiðinni.

⌚

Apple Watch og Garmin

Fyrirhugað er að auðvelda innflutning hjólaferða úr Apple Health og Garmin.

📊

Ferðir og tölfræði

Haltu utan um hjólaðar ferðir, vegalengd, tölfræði og ársmarkmið.

 App Store
Sækja fyrir iPhone
▶ Google Play
Kemur bráðlega

Um Hjólaappið

Hvernig Hjólaappið varð til

Hugmyndin að Hjólaappinu kviknaði þegar ég var staddur á Kirkjubæjarklaustri með hjólhýsið og rafmagnshjólið.

Ég fór að velta því fyrir mér að þarna hlytu að vera fullt af skemmtilegum hjólaleiðum — en ég vissi ekkert hvar þær væru eða hvernig best væri að finna þær. Og satt að segja veit ég það ekki enn.

Þá kviknaði hugmyndin: Af hverju ekki að búa til ókeypis app þar sem hjólafólk getur deilt leiðunum sem það þekkir?

Í stað þess að fólk þurfi að fara út og leita að leiðum sjálft gæti það opnað appið, séð leiðir sem aðrir hafa hjólað og fengið upplýsingar um þær — til dæmis lengd, yfirborð og erfiðleikastig.

Markmiðið með Hjólaappinu er að byggja smám saman upp safn af hjólaleiðum um allt Ísland, með hjálp fólksins sem þekkir þær best: hjólafólksins sjálfs.

Hjólaappið er enn að þróast og hugmyndin er einföld: því fleiri sem deila góðum leiðum, því gagnlegra verður appið fyrir alla.

Vertu með

Sæktu Hjólaappið, prófaðu leiðirnar og deildu þeim leiðum sem þú þekkir. Þannig getum við saman byggt upp betra safn af hjólaleiðum um allt Ísland.

Sækja fyrir iPhone

Hafa samband

Spurningar, ábendingar eða hugmyndir um Hjólaappið?

hjolaappid@hjolaappid.is

Persónuvernd

Hjólaappið notar staðsetningu þegar þú velur að taka upp eða hefja hjólaferð. Þú stjórnar sjálf/ur hvort hjólaleið er birt opinberlega.

Lesa persónuverndarstefnu